Um MNA.is
MNA.is safnar saman upplýsingum um samruna, yfirtökur og fjárfestingar í íslenskum fyrirtækjum á einum stað.
Markmið síðunnar er að gera yfirlit yfir íslensk fyrirtækjaviðskipti aðgengilegra fyrir fjárfesta, ráðgjafa, stjórnendur og aðra sem vilja skilja hvernig fyrirtæki á Íslandi ganga kaupum og sölum.
Upplýsingar um samruna og yfirtökur eru oft dreifðar og birtast ýmist í fréttatilkynningum og ársskýrslum fyrirtækja. MNA.is leitast við að safna þessum upplýsingum saman í skipulögðum gagnagrunni þar sem hægt er að leita, bera saman og fylgjast með þróun markaðarins.
Hvað er í gagnagrunninum?
Gagnagrunnur MNA.is inniheldur m.a.:
- Samruna og yfirtökur íslenskra fyrirtækja
- Kaupendur og fjárfesta sem taka þátt í viðskiptum
- Upplýsingar um atvinnugreinar
- Dagsetningar samninga og helstu upplýsingar um viðskiptin
- Heimildir, stöðu viðskipta gagnavart Samkeppniseftirlitinu og tengdar fréttir
Eftir því sem upplýsingar liggja fyrir getur gagnagrunnurinn einnig innihaldið:
- áætlað verð eða margfaldara (EV / verðmat)
- upplýsingar um ráðgjafa sem komu að viðskiptunum
- tengd viðskipti og sambærilega samninga
Til hvers er MNA.is notað?
MNA.is getur nýst m.a. til að:
Fá yfirsýn yfir markaðinn
- sjá hvaða fyrirtæki hafa verið keypt eða sameinuð
- fylgjast með þróun í ákveðnum geirum
Finna sambærileg viðskipti
- bera saman samninga í svipuðum fyrirtækjum
- fá hugmynd um verðmat fyrirtækja og þróun markaða
Sjá hverjir kaupa fyrirtæki
- fylgjast með virkni fjárfesta og fyrirtækja sem kaupa önnur fyrirtæki
- skoða fyrri viðskipti þeirra
Fyrir hverja er síðan?
MNA.is er gagnlegt fyrir:
- fjárfesta og fjárfestingafélög
- fyrirtæki sem eru að íhuga kaup eða sölu
- ráðgjafa í fyrirtækjaviðskiptum
- lögfræðinga og endurskoðendur
- fjölmiðlamenn og fræðimenn
- aðra sem hafa áhuga á íslensku atvinnulífi
Heimildir og gögn
Upplýsingar í gagnagrunninum eru settar saman úr opinberum gögnum og opinberlega aðgengilegum heimildum, þar á meðal:
- fréttum og fjölmiðlum
- opinberum tilkynningum fyrirtækja
- ársreikningum og opinberum skrám
- öðrum traustum heimildum
Markmiðið er að halda upplýsingum eins nákvæmum og uppfærðum og hægt er.
Um verkefnið
MNA.is er sjálfstætt verkefni sem hefur það markmið að bæta aðgengi að upplýsingum um fyrirtækjaviðskipti á Íslandi.
Síðan er enn í þróun og gagnagrunnurinn mun halda áfram að stækka eftir því sem fleiri viðskipti og upplýsingar eru skráðar.
Fyrir fyrirspurnir, ábendingar eða samstarf má hafa samband á info@mna.is.